Wok On er veitingastaður sem sérhæfir sig í asískri matargerð þar sem hollusta og gæði eru í fyrirrúmi. Wok On býður bæði upp á að velja rétt af matseðli eða setja saman þinn eigin rétt með nokkrum einföldum skrefum. Maturinn er síðan snöggeldaður á staðnum, fyrir framan þig á WOK pönnu. Matseðillinn er einfaldur, spennandi og sérsniðinn af hverjum viðskiptavin þar sem þeir setja saman sinn rétt með því að velja grunn, kjöt, grænmeti, sósur og toppings. Maturinn hentar einstaklega vel í "take away" þar sem maturinn helst heitur í langan tíma í rauðu boxunum. Matseðilinn má nálgast hér.
Wok On opnaði 7. maí 2016, í Borgartúni 29, síðan þá hafa bæst við átta staðir til viðbótar. Nú er Wok On staðsett í:
Borgartúni 29
Smáratorgi
Mathöll Höfða
Reykjavíkurvegi 66
Vík í mýrdal
Gróðurhúsinu í Hveragerði
Krónunni í Mosfellsbæ
Krónunni á Akureyri
Krónunni á Granda